Bryndís ;)

Velkomin á bloggið mitt :D

15.04.2008 01:01:54 / bryndis

Takk fyrir mig :)

 

Sæl veriði ;)

 

 

Ég vill byrja á því að þakka öllum þeim sem gáfu mér afmælisgjöf KÆRLEGA fyrir. Þetta var allt saman ÆÐISLEGT og ég er ekkert smá ánægð. Ég á svo yndislega vini, þúsund þakkir :*:*:*. Takk líka æðislega, þeir sem að eyddu kvöldinu með mér þið eruð BEST :*:*.

 

Ég, Héðinn, Bjarni, Íris, Svava og Natalie grilluðum seinasta laugardag og horðum á söngvakeppni framhaldskólanna. Rosa flott hjá strákunum okkar ;). Eftir keppnina fórum við í party heim til Bjarna og kíktum svo niður í bæ. Þar hitti ég Röggu mína, ýkt langt síðan að við djömmuðum saman. Við skemmtum okkur mjög vel, Love you girl :’.

 

Næsta föstudag er oppnunar party hjá LéttMót á milli kl. 5-7. Endilega kíkið ef þið hafið áhuga eða þekkið einhverja sem hafa áhuga J.  Þetta verður auglýst líka betur í Víkurfréttum og þið getið haft samabnd við mig líka ;). Léttar veitingar erð aí boði og bjór að sjálfsögðu ;).

 

Ótrúlega spennandi leikur framundan held að hann sé á miðvikudaginn á milli Keflavík-ÍR. Nú er bara að duga eða drepast :p. Ég vona að ÍR-ingarnir komi sterkari og ákveðnari til leiks ;). Grindavík tapaði í kvöld á móti Snæfellingum L alveg glatað ég sem he´lt með Grindavík. Jæja, þá er bara að stóla á ÍR hehe ;).

 

 

Ég fór til læknis í dag, ristilskoðun og svo í blóðprufu. Tuttugu mín eftir blóðprufuna leið yfir mig og það var læknir að labba akkurat framhjá mér og greyp mig. Hann lét mig á bekk og kallaði á hjúkrunakonur og þær keyrðu mig inn á einhverja stofu. Svo þegar ég gat loksins sest upp þá létu þær mig drekka endalaust af epla og appelsínu safa. Létu mig svo í hægindastól með teppi og þar jafnaði ég mig. Ég titraði, fékk tár og DÚNDRANDI hausverk. En ég jafnaði mig loksins og fékk að fara heim. Sem betur fer var Héðinn með mér J.

 

Ég er farinn í bíó með Héðni, Bödda og Írisi ;)

 

See ya J

 

-Bryndís Ósk-


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.03.2008 12:09:35 / bryndis

Afmæli Bödda

 

Hola ;)

 

Um helgina var ég að passa littla bróðir J. Við keyptum helling af nammi og ættluðum að hafa það kósý. En svo kom Bjarni, Gústi, Ívar, Natalie og Adda. Svo við fórum öll í póker J.

 

Á laugardeginum vaknaði ég ýkt snemma og var að horfa á skrípó með Brynjari Atla J. Við vorum á náttfötunum langt fram á dag heheh :D. Svo lét ég hann í sturtu og skuttlapi honum í afmæli. Ég fór á leikinn og Héðinn heim að þrífa bílinn. Njarðvíkingarnir byrjuðu mjög sterkt en duttum strax úr gír eftir hálfleik og töpuðum L. Ég, Sunna, Brynjar Atli, Héðinn og Bjarni fórum heim til m&p og grilluðum, mjög gott J. Svo gerðum við okkur til fyrir djammið og ég skuttlaði Brynjari Atla til ömmu. Við fórum í rvk í afmæli til Bödda. Það var ýkt gaman :D. Ef minn vinahópur hefði ekki komið þa hefði þetta verið glatað afmæli. En við björguðum málunum hehe ;). Við hreynlega áttum staðinn :p. Íris var Dj og við dönsuðum af okkur rassinn J. Kjarri og vinur hans komu, ýkt gaman að sjá Kjarra :D. Þetta var bara mjög skemmtilegt afmæli og gaurinn sem á staðinn er snillingur ;).

 

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ BÖÐVAR :*:*:*:*

 

HAHAHAHAH ég googlaði Böðvar og útkoman var þessi ;)

 

Í dag er leikur, Snæfell –Njarðvík. Það eru engar rútur sem fara (finst það frekar lélegt að hafa svona littla trú á liðinu sínu) þannig að ég, Sunna og Svava ættlum bara að keyra sjálfar. Við gerum gott úr þesu, fíflumst bara á leiðinni J.

 

Eydís þú VERÐUR að koma næstu helgi í afmæli til mín og Svövu, það er skyldumæting hehe ;).

 

See ya ;)

 

-Bryndís Ósk-


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 18:11:33 / bryndis

Sorglegt land

 

Tveir dómar sama dag á sama landinu.



Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í eins árs fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundna, fyrir hrottafengna árás og nauðgun gagnvart unnustu sinni. Þá var hann dæmdur til að greiða henni rúmar - sex hundruð þúsund - krónur í miskabætur.

Hæstiréttur hefur dæmt Hannes Hólmstein Gissurarson til að greiða Auði Laxness, ekkju Halldórs Laxness, - eina milljón og fimm hundruð þúsund - í fébætur fyrir brot á höfundarrétti í fyrsta bindi af ævisögu Halldórs. Þá er Hannes Hólmsteinn dæmdur til að greiða 1,6 milljónir í málskostnað.


Hvor konan ætli hafi þjáðst meira?
Andlega og líkamlega..

(stolið af lazy-club)

 

Varð bara að sýna þetta, þetta er hræðilega sorglegt land sem við búum í. Mér finnst þetta bara vera að gefa skít í fórnarlambið í málinu fyrir ofan. Þessi lög eru ekki heilbrigð :S


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 17:32:58 / bryndis

Páskarnir búnir :)

 

Jæja, þá eru páskarnir búnir. Mikið djammað, lært og horft á sjónvarpið J. Ég og Héðinn keyptum okkur allar seríurnar með Sex And The City, erum að horfa á þær, ýkt góðir þættir :D.

 

Ég, Héðinn, Íris og Böddi fórum út að borða á Duus og svo í bíó í Rvk. Fórum á Lars And The Real Girl. Fyrst er hún ÝKT fyndin, við hlógum og hlógum svo komu kaflar sem við sögðum: WTF á hvaða steiktu mynd fórum við á, og svo þegar myndin var búin sögðum við öll: Vá, léleg mynd :/. Haha, mjööggg furðulegt, við hlógum og hlógum, svo varð þetta steikt mynd og svo neii ekki góð mynd :p. Ég mæli með að taka hana bara á spólu ekki eyða pening í bíó :p. EN þið verðið samt að sjá hana til að hafa séð svona furðulega mynd :p hehe :p.

 

Ég er að fara í afmæli til Bödda næsta laug svo helgina eftir það er afmælið mitt :D. Það verður gaman, en ojj hvað ég er orðin gömul :p.

 

Ég og Sunna tókum rúnt áðan og hittum Ingu Ósk, við stoppuðum og kíktum á littla prinsinn hennar, hann er sko ALGJÖRT rassgat, dúllidúll J. Ég kem bráðum í heimsókn Inga :*.

 

Annars er ekki mikið að frétta af mér, hlakka bara endalaust mikið að komast í sumarfrí og klára þennan blessaða skóla og fara til TYRKLANDS :D. Vorum að spá í að allir sem fara í þessa ferð og ef hún verður ýkt skemmtileg þá ættlum við að fá okkur öll tattoo á eina rasskinnina sem stendur: Tyrkland 2008, þá munum við alltaf eftir henni, hahahhaha, vittleysingar ;p.

 

Ég var að fá eitt fallegasta afmæliskort sem ég hef fengið frá ömmu og afa í ameríku J Það var svona: You’re a wonderful one-of-a-kind granddaughter.

Elsku Bryndís
Never forget how very special you are...

Never forget....
even for a moment...

How very much

You are loved.

Happy Birthday
Innilega hamingju óskir á afmælisdaginn
þúsund kossar og knúsar.

Amma og afi

 

Vaá þau eru sætust J. Þetta er svoooooo fallegt :*:*

 

Mamma var að kaupa afmæliskjól á mig áðan, mamma þú ert best :*

 

Ég og Héðinn erum að passa Brynjar Atla í kvöld/nótt. Við ættlum að hafa það kósý, horfa á spólu og hafa nammi :D. Svo er leikur á morgun, Njarðvík-Snæfell, Frikki S verðru ekki með :/. Svo þetta verður ennþá erfiðara :/. Vonum það besta :p.

 

Ég ættla að taka aðeins til, læra og fara í Bónus, see ya ;)

 

-Bryndís Ósk-


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 18:56:44 / bryndis

Nýtt Fyrirtæki !

Héðinn og pabbi voru að stofna nýtt fyrirstæki sem heitir Létt Mót ehf.

www.lettmot.is

 ... þeir eru með steypumót sem eru úr trefjaplasti og eru miklu betri og léttari en öll önnur mót á íslandi !!!

;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 18:05:06 / bryndis

Amma mín er töff ;)

 

Hola people ;)

 

Langt síðan að ég bloggaði, já ég veit ;p.

 

Þessi helgi var bara róleg en rosa skemmtileg :D. Á föstudaginn fórum ég, Héðinn, Gústi, Ívar, Svava og Natalie út að borða á Pizza Hut svo fórum við í keiluhöllina, fengum okkur bjór og vorum að chilla þar, ættluðum svo í keilu en það var allt fullt. Svo fórum við heim til mín og Héðins að drekka bjór og chilla J.
Á laugardeginum fór ég og Héðinn í Rvk, við vorum bara að dúlla okkur þar fórum svo í bíó um kvöldið á 27 Dresses, hún er mjög góð mynd, mæli með henni :D.
Á sunnudeginum vöknuðum við snemma gerðum okkur fín og fórum í fermingu til Elvars. Hann var ekkert smá flottur, flott veisla og æðislegur matur
J. Um kvöldið bauð Heðinn mér út að borða á Rauðará út af konudeginum. Það var æðislegt J. Staðurinn var ýkt flottur og kósý, kertaljós og sætt hehe :D. Fyrst fengum við humar, hann var æði, svo fengum við fisk eða bara Héðinn ég vildi ekki minn, ég fékk bara meðlætið :p, svo fengum við lamb og kartöflu með osti, þetta var besta kjöt sem ég hef smakkað og karftalan var æði umm þetta var svo gott J svo fengum við banana böku með rjóma og súkkulaði og karmellu sósu í eftir  rétt. Þessi matur var ÆÐISLEGUR, kvöldið var æði og allt æðislegt. Love you Héðinn minn :*

 

Ég var að segja ykkur svolítið.....amma mín er 72 ára og hún er í kanaríeyjum núna, búin að vera þar í 6 vikur og hún fór í fallhlífastökk hahahahhaha amma mín er sko algjör töffari ;) ;*.

 

Amma og afi eru að kma heim á morgun jjeiii sakna þeirra svooo mikið :D.

 

Eydís er að koma næstu helgi, erum að plana skemmtilegt laugardagskvöld fyrir hana, hlakka mikið til ;). Svo er leikur hjá stelpunum á laugardeginum kl 4 í ljónagrifjunni, kvet alla til að mæta og styðja Eydísi hehe ;).

 

-Bryndís Ósk-


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 20:14:10 / bryndis

Keila fellur niður

KEILAN FELLUR NIÐUR, VERÐUM AÐ GERA ÞAÐ EINHVERNTÍMAN SEINNA BARA. Hún Svava mín bauð mér í mat á laugardaginn og svo verður stelpu djamm :D. Verðum örugglega um 6 stelpur. Matur, eftirréttur og kokteilar umm þetta verður gaman J

 Við getum ekki heldur farið í keilu á föst, þá er bóndadagur, ættli maður verði ekki að gera eitthvað handa kallinum ;p.  

Hey, góðar fréttir, Gústi og Ívar koma með til Tyrklands, vá þessi ferð er alltaf að verða skemmtilegri og skemmtilegri. Það er skemmtistaður þarna með froðuball, við þanngað pott þétt :D.

  Kanski förum við bara í keilu þar næstu helgi ;), held samt að mér sé boðið í mat þá líka :p hhaha wow bara full dagskrá ;p.  

Það eru komnir gestir see ya ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 21:37:33 / bryndis

Keilanæstu helgi?

Hann pabbi minn á afmæli í dag, eld gamall hahahha djók ;). Til hamingju með daginn elsku pabbi minn :*. Hann liggur í sólinni á kanaríeyjum með mömmu, Brynjari Atla, ömmu og afa .

Bjarni og Eva voru að fara til Ameríku, Eva er að fara í skóla þar . Allir bara farnir út :p. Ég fer í sumar, get ekki beðið :D:D.

Helgin var bara mjög skemmtileg . Á föstudeginum skelltum ég og Héðinn okkur í ræktina, ótrúlegt en satt hehe . Ívar og Gústi fóru líka. Svo um kvöldið vorum við bara að kúra. Á laugardags kvöldið elduðum við (ég og Héðinn) okkur kjöt og opnuðum rauðvínsflösku,ýkt rómó hehe . Eftir nokkur glös var Héðinn farin að finna á sér hahahhahaha það var ýkt fyndið ;). Svo kom Íris og við fórum til Ívars, Gústa og Skúla. Vorum að spila popp punkt :p. Gátum misvel svarað spurningunum hehe ;p. Svo fór Íris heim en við hin fórum í innflutnings party til Óla uppá völl. Stoppuðum stutt og fórum svo niðrí bæ . Það var rosa gaman, held að ég hafi verið fulli gaurinn þetta kvöld ;p. Ég hringdi í Guðbjörgu og sagði: Ívar og Héðinn eru að berja svertingjann. Whhaatttt, HAHAHAHAHHAHA ég var bara að bulla eitthvað ;).

Næstu helgi, þá var ég að spá, nennir einhver að koma í keilu og svo hjemm á djammið ??? ;) einhver game?? Getum líka farið út að borða eða eitthvað :p.

Ég er farin að kúra og horfa á TV,

See ya ;)
Bryndís Ósk

P.s. var að setja inn gamlar myndir fráferðalagi sem við stelpurnar fórum í, gjeggjað gaman, mikið djamm, mikið fjör ;). Rændi þeim af Írisi hehe ;) ,færeyskirdagar

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 19:00:05 / bryndis

19 ára gjella ;)

Loksins, loksins unnum við KR-inganna :p. Þetta var gjeggjaður leikur, æsispennandi J. Njarðvíkingarnir byrjuðu þrusu vel og héldust þannig út leikinn J. Þeir voru sko alveg tilbúnir í slaginn og kláruðu sinn leik J. Þá erum við búin að tryggja okkur sæti í 4 liða úrslitum í bikarnu ;D. Við drógumst á móti Snæfell, heimaleik. Þeir eru þrusu sterkir svo þetta verður erfiður leikur. Ég kved alla að mæta og styðja sína menn ;).

  Guðbjörg Lára á afmæli í dag, skvísan orðin 19 ára gömul :D. Til hamingju elsku ástin mín ;* Love you mestast :*. Ég kem í kökur á morgun hehe ;).    

Sætasta frænkan ;)

 Fjölskyldan er farin til Kanaríeyja, liggja í sólbaði á meðan við drukknum í snæjó, YAK!! ;p

 Hvar á ég að vinna í sumar?? Veit ekkert hvað ég vill gera ;p 

Ég og Héðinn ættlum að byrja í ræktinni við erum orðin svo feit heheh :p. Verðum að vera flott þegar við förum til Tyrklands ;) 

Ég ættla að fara að læra og horfa á TV J

 Later ;) 

Bryndís Ósk


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 22:23:30 / bryndis

Tyrkland í sumar :D

Gleðilegt nýtt ár :D. Áramótin voru mjög fín hjá mér. Ég og Héðinn borðuðum hjá mömmu hans, mjög góðan kalkún. Svo fórum við heim til mömmu og pabba míns að horfa á áramótsskaupið og skjóta upp. Svo var ég, íris, Héðinn, Bjarni, Eva og pabbi að syngja og pabbi spilaði á gítar, það var klikkað stuð hjá okkur hehe ;). Eftir smá tíma fórum við krakkarnir heim til mín og Héðins og þanngað komu helling af krökkum J. Svaka stuð ;) 

Eydís átti afmæli 2. janúar til hamingju með það elskan, orðin eld gömul 21 hahhahah ;) Love you :*
Haukur og Ingi áttu svo afmæli 3.janúar til hamingju með það strákar ;).
 

Ég, Héðinn, Íris og Böddi vorum að panta okkur far til Tyrklands í sumar :D. Mér hlakkar ótrúlega mikið til :D. Ef að ÞÉR langar að koma með þá bara hafðu samband við mig og ég skal segja þér allt um þessa ferð en svona í stuttu máli þá ættlum við til Tyrklands-Marmaris í 2 vikur, í ágúst. Því fleiri sem vilja koma því skemmtilegra verður það J. Ferðin kostar aðeins 66 þúsund á mann í stúdíó íbúð með morgunmat :D. Mjög ódýr ferð, þetta verður ýkt gaman, takið bara góða skapið með þá verður þessi ferð æðisleg :D.

 

  -Bryndís Ósk- ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 16:24:29 / bryndis

Jól 2007 :D

Gleðileg jól öll sömul, hafið það sem allra best yfir hátíðirnar. Sjáumst svo um áramótin í góðum gír hehe ;)

 Jólakveðja
Bryndís Ósk

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 17:27:48 / bryndis

Hvar eru allar myndirnar???

WHAT!!! Hvar eru allar myndirnar sem voru á blogginu mínu???? Ég er allavena búin að setja inn frá ameríku en það er ekki fræðilegur að ég nenni að setja allar hinar inn aftur....sorry, engar myndir hjá mér.....vá fokkt upp!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 17:20:23 / bryndis

Ameríkuferð!! :D

Ég veit að ég er búin að vera löt við að blogga, það er bara búið að vera svo mikið að gera hjá mér seinustu daga. Klára allt fyrir skólan, vinna, fara til ameríku hehe ;p.  

Talandi um ameríku, þessi ferð var sko GJEGGJUÐ!!! :D. Ég er þvílíkt ánægð með hana :D:D. 

Ég gerði mig reddy kvöldið áður en ég átti að fara til Ameríku vegna þess að ég var í skólanum svo lengi. Hljóp úr skólanum og beint heim til mömmu. Mamma skuttlaði mér upp á völl og kom með mér upp. Hún þurfti að sýna mig í vinnuni hennar :p, svo gaf hún mér að borða og við sátum og spjölluðum aðeins J. Svo komu Íris og allar konurnar J. Rétt fyrir brottför hlupum ég og Íris í fríhöfnina og keyptum okkur nammi :D. Svo þurftum við að labba alveg út í enda á flugstöðinni :p. Þegar að ég og Íris komum út í enda mættum við helling af strákum saman í hóp. Þetta voru örugglega einhverjir íþróttagaurar. Þeir voru allir í sömu úlpunum hehe :p. Þeir bjuggu til hring í kringum okkur og störðu og brostu til okkar. Ég og Íris urðum svo feimnar að við brostum bara út að eyrum og löbbuðum í burtu. Svo sprungum við úr hlátri HAHAHHAHA!! :p. Sumir nudduðu á sér augun og sögðust aldrei hafa séð svona flottar gjellur hahahha :p. Ferðin byrjar vel ;).  

Ég, Íris og mamma Írisar sátum saman í flugvélinni. Ég og Íris vorum svo spentar að komast til Ameríku og það var svo gaman að fara saman út að við vorum í þvílíku kasti og létum bara eins og hálfvitar, eins og að við værum bara einar þarna í flugvélinni :p. Mamma Írisar skammaðist sín svo mikið fyrir okkur að hún var alltaf að fara og tala við aðrar konur HAHAHAHAHAHHA!!! Við voum að spila helling af spilum, hlusta á i pot og syngja með, tala saman um leyndó haha og svo bara að fífilast eitthvað. Það var ekkert smá gaman hjá okkur enda voru þessir 6 klukkutímar bara mjög fljótir að líða J. Svo vorum við að lenda og ég með brosið út af eyrum J. Feel like i was comming home :D.

  

 Amma, afi, Gunna, Charlie og Isabel komu öll að ná í mig J. Ég var svoooo ánægð að sjá þau öll J. Ég var að sjá Isabel (3 ára) og Charlie (1 árs) í fyrsta skiptið. Vá þau eru sko sætustu börn í öllum heiminum geiminum :*. Ég fór heim með þeim til Colinbiu en Íris fór með öllum konunum upp á hótel í Annapolis.

 Þegar ég kom heim til Gunnu og Dan fékk ég BROWNIE loksins, ég er búin að bíða eftir að fá ekta brownie síðan að ég var í 10.bekk. Ummm hún var gjeggjuð :D. Brownie var morgunmaturinn minn og milli máltíða maturinn minn alla ferðina umm I love it ;D. 

 Á föstudeginum fórum við í Target og versluðum mikið þar. Svo fórum við í mall og þar verlsaði ég alla jólakjólanna mína og eitthvað af jólagjöfum. Það er svo gaman að versla í Ameríku, það er gjeggjað J. Það var samt pínu erfitt að vera að versla og vera með Isabel og Charlie, en mér fannst bara svo gaman að hafa þau að mér var eiginlega alveg sama að ég verlsaði ekki úber mikið og var frekar bara með þeim :D. Ég knústi þau allan daginn, þau eru ÆÐI :D 

Mér fannst svo gaman að vera þarna í Ameríku með ömmu, afa, Gunnu, Dan, Isabel og Charlie þetta var svo gaman :D. Ég hitti Sean ekki neitt, hann er nýgiftur og eitthvað upptekinn. Skiljanlega ;) hehe.  

Stelpur, þið sem hafið hitt Sean, finnst ykkur ekki skrítið að hann sé giftur?? Hann er svo mikill gaur enþá, ovur töffari. Ég get ekki séð það fyrir mér að hann hefur beðið hennar. Samt ovur sætt, og hann er ýkt góður við hana og allt það en hann er bara svo mikill gaur og ég hélt að hann myndi aðeins bíða lengur með giftingu :p. En Sean til hamingju :*:* 

Á laugardeginum fórum ég, amma og Gunna til Annapolis í mallið hjá Írisi J. Amma og Gunna fóru að verlsa og í bíó á meðan að ég fór með Írisi og Bödda að versla J. Það var ýkt gaman hjá okku. Böddi hélt á öllum pokunum fyrir okkur á meðan að ég og Íris versluðum, ýkt góður, thanx Böddi ;*. 

 Ég nenni ekki að segja betur frá öllu, en þessi ferð var sko ÆÐI. Það var svo gjeggjað að vera að versla í malli í Ameríku og að hitta alla :D. Það var svo gaman og ég vildi eiginlega bara ekkert fara heim L. Ég væri sko alveg til í að vera þarna lengur. Mér fannst svo gaman að amma og afi gátu komið til Gunnu, þau sko búa solldið langt frá Gunnu svo það var æði að þau gátu komið :D. Þessi ferð var æðisleg í alla staði J. 

Uppá flugvelli hittum við Dilönu, hún var að koma til Íslands líka J. Hún var þvílíkt hress, ýkt töff gjella, spjölluðum heillengi við hana :D Hún er algjör dúlla J 

 Gjeggjuð ferð í alla staði J. Ég og Íris erum sko staðráðnar í því að fara aftur þetta var gjeggjað J. Ég og Sunna ættlum reyndar líka til ameríku í páskafríinu á NBA leik. Svo ég þarf að fara að spara penge :p. 

Jæja, þetta er gott í bili, þarf að fara að læra, see ya ;*

 

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 16:19:54 / bryndis

Helgi með körfu ársins

Ég, Sunna og Svava skelltum okkur á KR-UMFN leikinn í gærkvöldi. Það komu mjög fáir Njarðvíkingar á leikin og ég er sko alls ekki sátt með það. Leikurinn var sýndur í sjónvarpinu en Njarðvík þarf á okkar stuðning að halda, svo mætið öll á næsta leik og styðjum okkar menn ;). Þetta var mjög spennandi leikur, mjög jafn allan tíman. Njarðvík var að spila miklu betur núna en í síðustu leikjum. Kaninn okkar var mun betri en því miður að þá finst mér að við verðum að fá betri kana fyrst að hin liðin eru komnir með 3 kana þá verðum við að fá einn sterkan á móti þeim.
Njarðvík var yfir 79-81 þegar það voru aðeins 7 sek eftir. KR tók leikhlé, svo brunaði Brynjar upp völlinn með boltan gaf á Helga sem var alveg út í horni smá fyrir aftan körfuna og fyrir aftan þriggja stiga línuna. Hann kastaði boltanum og á sama tíma braut Long á honum. Á meðan að boltinn var í loftinu rann tíminn út og flautað var til leiksloka (sem sagt við hefðum unnið;), en eftir að tíminn rann út fór boltinn beint ofaní og KR unnu með einu stigi, lokatölur 82-81.
Ég trúi ekki enþá að boltinn hafi farið ofaní, þetta var ekkert smá ótrúleg karfa. Ég átti ekki til orð þegar að ég sá þetta gerast. Þetta var sárt tap þar sem að maður fann fyrir sigrinum. Þessi karfa kom sko á óvart en ekki hægt að skammast í liðinu fyrir þessa körfu. Frábær leikur samt hjá Njarðvík, við erum á uppleið
J

 „Þetta var algjör grísakarfa," sagði Helgi Már brosmildur í leikslok. „Hann varði frá mér fyrsta skotið mitt í leiknum og ég skaut því hátt og hann endaði ofan í. Ég tek það. Þetta var ljúft en við þurfum að bæta mikið fyrir Keflavíkurleikinn."


Teitur Örlygsson, þjálfari Njarðvíkur, var eðlilega svekktur. „Þetta var alveg ógeðslega svekkjandi og verra að geta ekkert gert í þessu síðan," sagði Teitur, sem bar engu að síður höfuðið hátt. „Ég er hrikalega ánægður með strákana, sem voru komnir með leikinn en það var lítið við þessari körfu að gera. Við sýndum samt í leiknum að við erum meðal þeirra bestu."

Ég er rosa ánægð að hafa fengið Hörð Axel í Nj liðið. Ótrúlega góður leikmaður J. Þegar að hann og Jói komast í gírinn þa´er sko ekki hægt að stoppa þá. Tveir yngstu og efnilegustu leikmenn landsins klárlega ;).

 -Bryndís Ósk-


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 17:53:02 / bryndis

Skólinn er að drepa mig...

Það er VIKA í AMERÍKUNNAAA!!!! Vá mér hlakkar svo mikið til ég get ekki beðið. Ég og Íris tölum ekki um neitt annað en ameríku :D. Við ættlum sko að versla af okkur rassgatið ;p. Við fórum og keyptum okkur spil svo okkur mun ekki leiðast á leiðinni ;). Amma og afi ættla að koma til Gunnu svo ég fæ að hitta alla :D. Mér hlakkar mest til að sjá Isabel og Charlie þar sem að ég hef aldrei séð þau áður, nema á mynd :p 

Það er svo mikið að gera í skólanum að ég er að drukkna. Ég ættlaði að vera voða dugleg og byrja ða kíkja yfir allt fyrir prófin en það er bara ekki séns að ég geti það vegna þess að ég er að gera verkefni, lesa bækur, próf og fleira á hverjum degi alveg til prófa. Þetta er bilun sko :/. Þið vitið hvar á að leita af mér ef ég týnist.........undir skólabókunum.......sshhiittt þetta er sko bara ruggl hvað það er mikið að gera.  

Ég er að fara á körfuboltaleik KR-UMFN. Það er eins gott að við vinnum þá núna. Þeir tóku okkur í rassgatið seinast í úrslitunum. Við vorum að keppa við Kef um daginn og við töpuðum fyrir þeim. Keflavík eru orðnir þvílíkt sterkir og með góða breydd í liðinu. Við verðum að fara að skirpa í lófanna og gera enn betur. Það kemur sko ekki til mála að láta annan bikar fara frá okkur. 

 Ég ættlaði bara að henda smá færlu hingað inn, ég ættla að drífa mig í rvk á leikinn og svo heim að læra :S  

See ya... 

Bryndís Ósk

 

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14